Somers Town
2008
Fannst ekki á veitum á Íslandi
71 MÍNEnska
96% Critics 77
/100 Somers Town er bresk mynd sem segir frá táningspiltunum Tomo og Marek, sem eiga erfitt með að fóta sig í kringum heim hinna fullorðnu. Tomo (Thomas Turgoose) er alinn upp við erfiðar aðstæður í Miðlöndunum í Englandi og hefur ávallt verið mjög einmana. Einn daginn ákveður hanna að hann sé búinn að fá nóg af litlausu lífi sínu á þessum stað og... Lesa meira
Somers Town er bresk mynd sem segir frá táningspiltunum Tomo og Marek, sem eiga erfitt með að fóta sig í kringum heim hinna fullorðnu. Tomo (Thomas Turgoose) er alinn upp við erfiðar aðstæður í Miðlöndunum í Englandi og hefur ávallt verið mjög einmana. Einn daginn ákveður hanna að hann sé búinn að fá nóg af litlausu lífi sínu á þessum stað og strýkur til London. Þar hittir hann fyrir tilviljun pólska innflytjendasoninn Marek (Piotr Jagiello), sem býr með föður sínum í Somers Town-hverfinu í London. Marek og Tomo verða fljótt vinir og Marek leyfir Tomo að gista í leyni í íbúðinni sinni, án þess að segja föður sínum frá því. Þeir lenda í fjölda lítilla ævintýra í sameiningu, t.d. stela þeir fötum úr þvottahúsi og græða pening á sérvitrum nágranna sínum. Hins vegar flækist vinátta þeirra félaga þegar þeir heillast báðir af sömu stúlkunni, hinni frönsku Mariu, sem vinnur á kaffihúsi í hverfinu. ... minna