Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraMyndin vísar til eða sýnir notkun vímuefnaÍ myndinni er ljótt orðbragð

It's a Boy Girl Thing 2006

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 11. maí 2007

They've turned into the things they hated most... each other.

95 MÍNEnska

Nágrannarnir Nell Bedworth og Woody Deane eru ólík og þau þola ekki hvort annað: jómfrúin, nördinn Nell, er kurteis, viðkvæm og vel undirbúin undir að fara í Yale háskólann, en Woody er grófur, ókurteis, og metnaður hans nær ekki lengra en að fara í meðalgóðan háskóla þar sem hann getur spilað fótbolta. Þegar Nell og Woody þurfa að fara saman á... Lesa meira

Nágrannarnir Nell Bedworth og Woody Deane eru ólík og þau þola ekki hvort annað: jómfrúin, nördinn Nell, er kurteis, viðkvæm og vel undirbúin undir að fara í Yale háskólann, en Woody er grófur, ókurteis, og metnaður hans nær ekki lengra en að fara í meðalgóðan háskóla þar sem hann getur spilað fótbolta. Þegar Nell og Woody þurfa að fara saman á safn, þá fara þau að rífast fyrir framan forna styttur af Aztekaguði. Um nóttina þá skipta sálir þeirra um líkama, og hún er komin í hans líkama og öfugt, sem flækir málin heldur betur. Fyrst reyna þau að skemma fyrir hvort öðru í miðskólanum, en fljótlega átta þau sig á að til að komast í háskóla, þá þurfa þau að virða hvort annað og styðja.... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn

Handrit


Its a boy girl thing er gott dæmi um það að Holliwod er algjörlega byrjuð að skíta yfir bakið á sér og hugsa bara um ekkert annað en að græða meiri peninga á heimskum almúganum. Ég borgaði ekki fyrir þessa mynd svo ég hef kannski litla afsökun, þó svo að ég skammast mín smá fyrir að plata sjálfan mig í það að sjá þessa mynd.

Finnst eins og frammleiðendur myndarinnar hefur sest niður og hugsað sér, okei hvað getum við stolið og notfært okkur til að gera mynd sem laðar að miljónir litla smá stelpna sem virðast hafa ekkert hugmyndarflug og þurfa að vera matað einhverri helvítis vitleisu sem hefur engan tilgang eða söguþráð. Maður er búinn að sjá þennan söguþráð svo oft áður, fólk skiptist um líkama, jú jú þetta er skemmtileg hugmynd og hægt að gera ágæta hluti með þennan söguþráð, en það er svo alls ekki gert með þessa mynd, hún er aljgörlega bragðlaus, hún á sér engan sjarma og maður er algjörlega hlessa að fólki finnst svona drasl gott.

Eina jákvæða var að leikkonan sem leikur í þessari mynd er ótrúlega flott, og naut ég mín mikið þegar ég sá hana á tjaldinu, en hún var langt frá því að vera góð í sínu hlutverki. Strákurinn hins vega stóð sig mun betur, hann náði báðum karaterum vel, sem strákur og síðan sem stelpa, hann fær nú plús fyrir það.

Ég viðukenni það að mér finnst stundum lúmskt gaman af unglingamyndum sem maður er mataður af öllu og þarf ekki að hugsa neitt, bara brosa og hafa gaman að, jú jú það er allt gott og blessað með það, en svona vitleisa líð ég alls ekki og verð ég að segja að ég gef myndinni bara fílukall, sem ég reyni nú oft að forðast, en myndin fannst mér alveg hræðilega leiðinleg.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn