Náðu í appið
Bönnuð innan 12 ára

Manhunter 1986

Fannst ekki á veitum á Íslandi

It´s Just You and Me Now, Sport.

119 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 94% Critics
The Movies database einkunn 75
/100

Will Graham er fyrrum alríkislögreglumaður sem er nýlega hættur störfum og fluttur til Flórída ásamt eiginkonu sinni Molly og ungum syni þeirra. Graham var greinandi og bjó til geðsnið af glæpamönnum til að reyna að átta sig á hvernig þeir hugsuðu. Will er kallaður aftur til starfa af fyrrum yfirmanni sínum, Jack Crawford, til að hjálpa alríkislögreglunni,... Lesa meira

Will Graham er fyrrum alríkislögreglumaður sem er nýlega hættur störfum og fluttur til Flórída ásamt eiginkonu sinni Molly og ungum syni þeirra. Graham var greinandi og bjó til geðsnið af glæpamönnum til að reyna að átta sig á hvernig þeir hugsuðu. Will er kallaður aftur til starfa af fyrrum yfirmanni sínum, Jack Crawford, til að hjálpa alríkislögreglunni, FBI, að ná raðmorðingja, sem er þekktur sem Tannálfurinn, sem velur fórnarlömb sín af handahófi, og drepur heilar fjölskyldur á heimilum þeirra á nóttunni, á fullu tungli, og skilur eftir bitför á líkunum. Will hittir Dr. Hannibal Lecter reglulega, mann með mikla persónutöfra, sem er stórhættulegur raðmorðingi, sem Will handtók nokkrum árum fyrr, og gerði hann næstum geðveikan sjálfan, og kostaði hann nánast lífið. Með smá hjálp, og eftir að hafa yfirstigið þröskulda, þá keppir Will nú við klukkuna áður en máninn verður fullur á ný. Á öðrum stað er ljósmyndarinn Francis Dollarhyde, morðinginn sem Will leitar að. Hann reynir að fara huldu höfði og kynnist blindri konu sem er grunlaus um hver hann er í raun og veru.... minna

Aðalleikarar

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn