Náðu í appið
Öllum leyfðÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirÍ myndinni er ljótt orðbragð

Big Trouble 2002

Frumsýnd: 26. júlí 2002

They have forty-five minutes to save the world. They need forty-six.

85 MÍNEnska

Mikil keðjuverkun atvika hefst með tilkomu dularfullrar skjalatösku í Miami. Spilltur athafnamaður, Arthur Herk, vill ná töskunni. Á sama tíma vilja tveir leigumorðingjar koma honum fyrir kattarnef. Eiginkona Herk, Anna, og dóttir þeirra, Jenny, sem eru orðnar dauðleiðar á endalausri drykkjunni og sjónvarpsglápinu á honum, ákveða að finna sér nýja kærasta... Lesa meira

Mikil keðjuverkun atvika hefst með tilkomu dularfullrar skjalatösku í Miami. Spilltur athafnamaður, Arthur Herk, vill ná töskunni. Á sama tíma vilja tveir leigumorðingjar koma honum fyrir kattarnef. Eiginkona Herk, Anna, og dóttir þeirra, Jenny, sem eru orðnar dauðleiðar á endalausri drykkjunni og sjónvarpsglápinu á honum, ákveða að finna sér nýja kærasta og hefja samband með hinum fráskilda Eliot Arold og syni hans Matt. Til að flækja málin enn frekar þá ákveða tveir þjófar að stela töskunni og villa um fyrir lögreglunni. ... minna

Aðalleikarar


Skemmtileg mynd sem allir ættu að hafa gaman af! Myndin er tvær sögur sem tengjast saman en þetta byrjar allt á stráki. Í skólanum hans er einhver leikur í gangi sem fjallar um aðmaður á að skjóta einhvern bekkjafélega sinn með vatnsbyssu heima hjá fórnarlambinu. Hann ætlar þá að ráðast á bekkjarsystur sína en einmitt á sama augnabliki eru leigumorðingjar að fara að drepa pirraða faðir stelpunnar en skjóta óvart sjónvarpið. Pabbinn er ríkur og snobbaður og ætlar að kaupa sprengju og finna þessa gaura (kannski aðeins of mikið). Hann kaupir þetta í litlum rússnenskum bar en einmitt þegar hann kaupir það koma tveir ræningjar (Johnny Knoxville er einn af þeim) og halda að í töskunni sem sprengjan er í að í henni sé gull. Þá kemur faðir stráksins (Tim Allen) inn í en hann hitti mömmu stelpunnar (Rene Russo) þegar vatnsbyssuvandamálið kom upp. Þau tvö stelpan og strákurinn og vinur stráksins (DJ Qualls,Road Trip), og tvær löggur að ná heimsku ræningjunum áður en að sprengjan springur.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Myndinn Big Trouble fjallar um 14 karaktera sem að maður kynnist við þessa upplifun.

Hún fjallar um hippan Puggy sem líkist jesús og býr í tréinu hjá Arthur;.

Snobbaða gaurinn Arthur og konuna hans og dóttir hennar.

Tvo heimska bófa.

Tvo stráka með vatnsbyssu og pabba annars þeirra.

Nínu vinnukonu.

Löggurnar tvær.

Svo eru fleiri.

Myndin byrjar á því að bófarnir ætla að skjóta Arthur,

en á sama tíma eru strákarnir með vatnsbyssuna; sem ætla að skjóta stjúpdóttir Arthurs með vatnsbyssunni en það hittir svo illa á að þeir koma á sama tíma og þessvegna skýtur annar strákurinn stjúpdóttir Arthurs en bófarnir skjóta skoti sem lendir í sjónvarpinu og flýja.

En á meðan þeir flýja þá hlaupa þeir undir tréið hans Puggy sem ræðst á þá.

Svona er myndin allan tíman og ekki er hægt að láta sér leiðast...

Kv. Almar
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skotheld skemmtun með þrumugóðum leikurum
Barry Sonnenfeld gerir hér það sem honum er mjög vel kunnugt, með því að sameina fjölmarga stórfína leikara við óborganlegt handrit, reyndar hefur það ekki alltaf heppnast alveg nógu vel hjá honum, eins og t.d. með myndir eins og Wild Wild West og nú nýlega MIB II. En nú er Barry kominn í Get Shorty-fílinginn, þar sem svartur húmor hans læðist inn í myndina og kemur sér vel fyrir í þrælskemmtilegri "sögu."

Leikararnir eru flestir áhorfendum kunnugir, og þar á meðal eru þau Tim Allen, Rene Russo, Tom Sizemore, Stanley Tucci, Janeane Garofalo, Dennis Farina (frábær að venju), Patrick Warburton, Jason Lee, Johnny Knoxville (sem er á hraðri leið upp stjörnuhimininn um þessar mundir), Zooey Deschanel og ýmsir aðrir. Söguþráðurinn er bæði einfaldur og margbrotinn. Myndin fjallar í stuttu máli um dularfulla ferðatösku sem dregur að sér marga ólíka einstaklinga; fráskilinn föður, óhamingjusama eiginkonu, leigumorðingja, steikta götubófa, ástfangna unglinga, moldríkan skíthæl og seinheppnar löggur. Þetta hrindir af stað skondinni og alveg hreint brenglaðri atburðarás sem má nokkurn veginn líkja við Get Shorty, svo sjá leikararnir um að láta manni aldrei leiðast ásamt klikkuðum húmor, m.a.s. fær hver og einn leikari sitt eigið móment, þ.e.a.s. sinn einkabrandara. Sonnenfeld hefur líka góð tök á leikaraliðinu og jafnframt leikstjórninni.

Veikasti hlekkurinn er samt sá að myndin getur orðið frekar fyrirsjáanleg þegar lengra líður á og hún getur á köflum orðið fullyfirdrifin í kjánaskap, en það er nú bara smákvörtun sem pirraði mig reyndar ekki mikið. Big Trouble er í heild sinni bráðfyndinn, skemmtilegur og kolruglaður farsi sem fær hiklaust meðmæli mín.

7/10

Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Þessi mynd er hrein og tær snilld, frábær húmor sem helst í gegnum alla myndina, frábærar myndatökur sem gera húmorinn enn skemmtilegri. Ég mæli hiklaust með þessari mynd fyrir alla sem hafa gaman að svörtum húmor.


Oddur Carl Thorarensen
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Þessi mynd kom mér skemmtilega á óvart með því að vera mun betri en ég bjóst við. Þetta er skemmtilegur farsi sem nær því að halda halda flugi alla myndina. Leikararnir skila sínu vel og gefur myndatakan myndinni áhugaverðan blæ. Ef verið er að sækjast eftir góðri afþreyingu þá er hiklaust hægt að mæla með þessari mynd.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn