Þriðji póllinn

Þriðji póllinn (2020)

The Hero's Journey to the Third Pole

1 klst 44 mín2020

Þriðji Póllinn er heimildarmynd um geðhvörf með söngvum og fílum.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Söguþráður

Þriðji Póllinn er heimildarmynd um geðhvörf með söngvum og fílum. Söguhetjur eru Högni Egilsson, tónlistarmaður, og Anna Tara Edwards, íslensk kona sem ólst upp í frumskógum Nepals innan um tígrisdýr og nashyrninga.  Anna Tara veiktist af geðhvörfum upp úr tvítugu og missti móður sína úr sama sjúkdómi. Hún lifði í skugga veikindanna um árabil, en þegar Högni Egilsson steig fram með sína sögu ákvað hún að feta sömu leið, skora skömmina á hólm og efna til tónleika til vitundarvakningar um geðsjúkdóma í Kathmandu, höfuðborg Nepals. Hún fékk Högna til að spila á tónleikunum og fyrir ágóðann var opnuð hjálparlína fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum í Nepal. Þriðji Póllinn fylgir Önnu Töru og Högna um framandi slóðir í aðdraganda tónleikanna. Við heyrum þeirra hliðar á sjúkdómnum; um hæðirnar og hinar miklu lægðir og leitina að jafnvægi. Þriðji Póllinn er ekki hefðbundin fræðslumynd heldur innsýn í hugsun og veruleika tveggja einstaklinga sem hafa glímt við sama sjúkdóm. Þetta er ferðasaga, mynd um óvænta vináttu og hreinskilin og opin umræða um hvað það þýðir að vera með geðsjúkdóm, og vera aðstandandi. Sögur þeirra lýsa bæði alvarleika sjúkdómsins, en einnig sigrum, og gefa umfram allt von.

Svipaðar myndir

Apausalypse
Apausalypse
2021
Sami leikstjóri: Anni Olafsdottir
Einkunn
Draumalandið
Draumalandið
2009·IMDb 7.2
Sami leikstjóri: Andri Snær Magnason
Einkunn
Band
Band
2022·IMDb 7.8
Líka heimildarmynd
Einkunn
Kaf
Kaf
2019
Líka heimildarmynd, íslenskt
Einkunn
Atomy
Atomy
2022
Líka heimildarmynd, íslenskt
Einkunn
Jarðsetning
Jarðsetning
2022
Líka heimildarmynd, íslenskt
Einkunn

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir eftir sama leikstjóra

Anni Olafsdottir
Anni OlafsdottirLeikstjóri

Aðrar myndir eftir sama leikstjóra

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!