Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börnÍ myndinni er ljótt orðbragð

Maze 2017

The shocking story of the biggest prison break in Europe since WWII.

92 MÍNEnska

Þann 25. september 1983 tókst 38 föngum sem dvöldu í Maze-öryggisfangelsinu á Norður-Írlandi að sleppa úr haldi og flýja. Þetta er fjölmennasti fangaflótti sem átt hefur sér stað í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar og í þessari vönduðu mynd er farið yfir hvað gerðist. Maze-öryggisfangelsið var þannig byggt að ekki átti að vera hægt... Lesa meira

Þann 25. september 1983 tókst 38 föngum sem dvöldu í Maze-öryggisfangelsinu á Norður-Írlandi að sleppa úr haldi og flýja. Þetta er fjölmennasti fangaflótti sem átt hefur sér stað í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar og í þessari vönduðu mynd er farið yfir hvað gerðist. Maze-öryggisfangelsið var þannig byggt að ekki átti að vera hægt að flýja úr því. Þangað voru sendir karlar sem dæmdir höfðu verið fyrir valdbeitingu og vopnaburð en áttu það líka sameiginlegt að vera taldir hliðhollir hryðjuverkaarmi IRA og til alls vísir í þeim efnum. Það varð því heldur betur uppi fótur og fit þegar 38 þeirra tókst að flýja og í gang fór einhver umfangsmesta aðgerð í sögu breskra lögregluyfirvalda við að hafa hendur í hári þeirra á ný. Um leið olli málið miklum titringi í stjórnmálum Bretlandseyja því yfirmenn fangelsisins skelltu skuldinni á nokkra breska stjórnmálamenn og sögðu að afskipti þeirra af innanhússmálum fangelsisins og tengsl við fangana hefðu lagt grunninn að flóttamöguleikanum ...... minna

Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn