Britt-Marie var hér
2019
(Britt-Marie var här)
Frumsýnd: 15. mars 2019
Byrjað upp á nýtt
94 MÍNSænska
71% Critics 53
/100 Britt-Marie er 63 ára kona sem þolir hvorki óhreinindi á heimili sínu né óreglu í hirslum þess og myndu margir segja að hún væri með tiltektar- og þrifnaðaræði. Þegar hún kemst að því að maðurinn hennar til 40 ára hefur verið henni ótrúr ákveður hún að fara frá honum og finna sér sína fyrstu vinnu á ævinni. Britt-Marie tekur fyrsta starfinu sem... Lesa meira
Britt-Marie er 63 ára kona sem þolir hvorki óhreinindi á heimili sínu né óreglu í hirslum þess og myndu margir segja að hún væri með tiltektar- og þrifnaðaræði. Þegar hún kemst að því að maðurinn hennar til 40 ára hefur verið henni ótrúr ákveður hún að fara frá honum og finna sér sína fyrstu vinnu á ævinni. Britt-Marie tekur fyrsta starfinu sem henni býðst en það felst í að taka að sér tilfallandi verk í svokallaðri félagsmiðstöð bæjarins, þ. á m. þrif. Það fer þó svo að hún leiðist út í það ólíklega hlutverk að þjálfa nokkra unga fótboltastráka sem geta reyndar lítið í fótbolta en bæta það upp með ótakmörkuðum áhuga og elju sem Britt-Marie kann að meta ...... minna