The Spy Who Dumped Me
2018
Frumsýnd: 8. ágúst 2018
Minimum Experience. Maximum Damage.
116 MÍNEnska
49% Critics
56% Audience
52
/100 Vinkonurnar Morgan og Audrey
ákveða að fara til Evrópu og slaka á eftir að unnusti Audrey
segir henni upp. En áður en þær leggja í hann komast þær að
því í gegnum dularfulla en vinsamlega menn sem yfirheyra
Audrey að unnustinn fyrrverandi er í raun njósnari. Audrey vissi
auðvitað ekkert um það og hefur ekki hugmynd um hvar hann
er niðurkominn. Hún verður... Lesa meira
Vinkonurnar Morgan og Audrey
ákveða að fara til Evrópu og slaka á eftir að unnusti Audrey
segir henni upp. En áður en þær leggja í hann komast þær að
því í gegnum dularfulla en vinsamlega menn sem yfirheyra
Audrey að unnustinn fyrrverandi er í raun njósnari. Audrey vissi
auðvitað ekkert um það og hefur ekki hugmynd um hvar hann
er niðurkominn. Hún verður því afar hissa þegar sá fyrrverandi
dúkkar upp í íbúðinni hennar og það sem verra er, að hann skuli
vera með leigumorðingja á hælunum. Þar með verður hún einnig
skotmark leigumorðingjans og það er með naumindum að henni
og Morgan takist að sleppa upp í flugvél og fara í hina fyrirhuguðu
ferð til Evrópu. Vandamálið er að leigumorðingjar geta líka farið til
Evrópu og áður en þær vinkonur ná að taka upp úr töskunum eiga
þær fótum fjör að launa. Tekst þeim að snúa aðstæðunum sér í vil?... minna