Bandaríski leikarinn Mel Gibson hefur bæst í hóp Sylvester Stallone, Wesley Snipes, Nicolas Cage, Jackie Chan og Milla Jovovich í framhaldsmyndinni The Expendables 3, sem Patrick Hughes mun leikstýra. Handritið skrifar sjálfur Stallone.
Stallone hefur verið duglegur að gefa aðdáendum upplýsingar á samskiptarsíðunni Twitter. Í gær skrifaði hann „Mad Max vs Barney Ross“ og vísar hann þar í hlutverk Gibson í samnefndri mynd. Barney Ross er að sjálfsögðu tilvísun í hlutverk Stallone í The Expendables. Ekki er nákvæmlega vitað hvaða hlutverk Gibson mun fara með í myndinni, þó margir vilja meina að hann verði illmennið.
The Expendables 3 er væntanleg í kvikmyndahús í ágúst á næsta ári.