Keppni er nú sögð vera hafin á milli leikkvennanna Angelina Jolie og Lady Gaga, um hlutverk Kleópötru drottningu Egyptalands, í samnefndri endurgerð myndar þar sem Elizabeth Taylor fór upprunalega með hlutverkið.
Óskarsverðlaunahafinn Jolie, sem er 43 ára, hefur, að því er fram kemur í DailyStar, verið í viðræðum um hlutverkið við yfirmenn hjá Sony myndverinu, í nokkra mánuði.
En Lady Gaga, 32 ára, sem fer nú með himinskautum í kjölfar vinsælda nýjustu kvikmyndar hennar A Star is Born, hefur einnig mikinn áhuga á hlutverkinu.
Heimildarmaður DailyStar hjá Sony segir: „Kleoópatra var þekkt sem drottning Nílar, og Elizabeth Taylor varð drottning Hollywood eftir frumsýningu kvikmyndarinnar árið 1963.“
„Það eru allar líkur á því að vegur þeirrar sem fær hlutverkið, muni vaxa mikið í kvikmyndaiðnaðinum.“
Kleópatra vann fern Óskarsverðlaun á sínum tíma, en slúðurpressann fékk einnig nóg fyrir sinn snúð, því Taylor átti í ástarsambandi við meðleikara sinn Richard Burton á tökustað. Síðar giftust þau og skildu í tvígang.
Myndin var kynnt á sínum tíma sem sögulegt drama og stórvirki, en talið er að nýja myndin verði kynnt sem „skítugur, blóðugur pólitískur spennutryllir, sagður frá feminísku sjónarhorni.“
Verðlaunasamanburður á milli Jolie og Gaga:
Angelina: Ein Óskarsverðlaun, þrenn Golden Globe verðlaun.
Gaga: Sex Grammy verðlaun, þrenn BRIT verðlaun, ein Emmy verðlaun.
Einkalífið:
Angelina: Er að skilja við þriðja eiginmanninn, Brad Pitt. Sex börn.
Gaga: Hyggur á hjónaband síðar á árinu með umboðsmanninum Christian Carino.
Tíska
Angelina: Klæddist lyfjaglasi með blóði annars eiginmanns síns Billy Bob Thornton.
Gaga: Var í kjól sem saumaður var úr hráu kjöti á MTV myndabandaverðlaunahátíðinni.
Barnæska
Angelina: Fædd inn í Hollywood fjölskyldu, og varð atvinnuleikkona 16 ára gömul.
Gaga: Fæddist sem Stefani Joanne Angelina Germanotta inn í verkamannafjölskyldu í New York. Hóf söngferilinn í knæpum.
Smellir
Angelina: Girl, Interrupted (Óskarsverðlaun).
Gaga: A Star Is Born.
Ríkidæmi
Angelina: 20 milljarðar íslenskra króna.
Gaga: 34 milljarðar íslenskra króna