Bandaríska netvídeóleigan Netflix birti í vikunni fyrstu stikluna í fullri lengd úr annarri þáttaröð sjónvarpsþáttanna vinsælu House of Cards með Kevin Spacey í aðalhlutverkinu.
Netflix framleiðir þættina sjálf.
Spacey leikur Frank Underwood, sem nú er orðinn varaforseti Bandaríkjanna.
Í helstu hlutverkum öðrum eru Robin Wright, Kate Mara, Michael Gill, Gerald McRaney, Michael Kelly, Mahershala Ali, Sebastian Arcelus, Kristen Connolly og Molly Parker.
Þáttaröðin verður öll aðgengileg á Netflix 14. febrúar nk.