Ástralski Leikarinn Chris Hemsworth sem þekktastur er fyrir leik sinn í myndunum Thor og Avengers, kom í gær til Íslands til að vera viðstaddur tökur á framhaldsmynd um þrumuguðinn Þór, að því er mbl.is greinir frá.
Thor 2 mun bera heitið Thor: The Dark World og verður frumsýnd á næsta ári, 2013.
Hér að neðan sést Hemsworth við tökur á Thor 2. Smellið á myndina til að sjá hana í fullri stærð.
Aðrir leikarar í myndinni eru meðal annars Anthony Hopkins, Natalie Portman og Stellan Skarsgård.