Fyrsta ljósmyndin af Liam Neeson í hlutverki föður Cristóvao Ferreira í kvikmyndinni Silence, er komin út.
Neeson grennti sig um tæp tíu kíló fyrir hlutverkið, eins og sjá má á myndinni.
Tökum á þessari nýjustu kvikmynd Martin Scorsese lauk í maí síðastliðnum.
Martin vill að menn leggi sig mikið fram og ég held að það hafi skilað sér,“ sagði hinn 63 ára Neeson um þyngdartapið er hann ræddi við fjölmiðla á kvikmyndahátíðinni í Los Cabos, að því er Collider greindi frá.
Silcene er væntanleg í bíó á næsta ári.