Fyrsta ljósmyndin af Ed Skrein í The Transporter Legacy er komin á netið. Eins og sjá má liggja tveir í valnum eftir hann og væntanlega eru fleiri í þann mund að fá það óþvegið.
Um er að ræða endurræsingu á The Transporter-seríunni og er Jason Statham fjarri góðu gamni.
Aðdáendur Game of Thrones muna eftir Skrein í hlutverki Daario Naharis í þriðju þáttaröðinni.
The Transporter Legacy kemur í bíó í mars á næsta ári.