Fyrsta myndin úr nýjustu kvikmynd Quentin Tarantino, The Hateful Eight, var birt á forsíðu nýjasta tímarits Entertainment Weekly fyrir skömmu.
Á myndinni hér til vinstri má sjá Samuel L. Jackson, Kurt Russell og Jennifer Jason í hlutverkum sínum í myndinni. Tim Roth, Michael Madsen, Walton Goggins, Channing Tatum og Bruce Dern leika einnig í myndinni.
The Hateful Eight gerist í Wyoming eftir borgarastríðið og er hún væntanleg í kvikmyndahús í nóvember.
Eins og flestum er kunnugt þá hætti Tarantino við að gera myndina eftir að handritið lak til umboðsmanna í Hollywood. Tarantino segist hafa komist að lekanum þegar umboðsmenn byrjuðu að hringja í hann og biðja um hlutverk fyrir leikara sína. Tarantino snérist síðan hugur og ákvað hann að gera kvikmyndina eftir endurbættu handriti.