Gamanmyndahátíð Flateyrar fór fram um helgina á Flateyri. Í tilkynningu frá hátíðarhöldurum segir að hátíðin hafi verið vel sótt, og tæplega 700 manns hafi mætt á viðburði á hennar vegum.
Þráinn Bertelsson var heiðraður fyrir framlag sitt til gamanmynda á Íslandi. Veitti hann verðlaununum viðtöku og í framhaldi af því var sérstök heiðurssýning á gamanmyndinni Nýtt líf.
Alls voru sýndar 23 íslenskar gamanmyndir á hátíðinni í ár og þar af sjö frumsýningar. Áhorfendur völdu fyndnustu mynd hátíðarinnar í kosningu og varð gamanmyndin Frægð á Flateyri hlutskörpust.
Frægð á Flateyri, eftir Jón Hjört Emilsson var tekin upp á fyrstu Gamanmyndahátíðinni, árið 2016, og er leikin heimildarmynd (mockumentary) sem fjallar um bróðir Jóns, Emil Alfreð Emilsson, sem er að fara á sína fyrstu kvikmyndahátíð, öruggur um að vinna hana, en margt fer út um þúfur í ferðinni.
C-vítamín, eftir Guðnýju Rós Þórhallsdóttir lenti í öðru sæti og hlaut því titilinn Næstum því fyndnasta gamanmyndin.
Meðfylgjandi er mynd af sigurvegaranum Jóni og stilla að ofan úr myndinni Frægð á Flateyri.