Carrie Fisher og Mark Hamill tóku þátt í fagnaðarhöldum í Þýskalandi í gær í tilefni af þrjátíu ára afmæli Star Wars Episode VI: Return of the Jedi.
Á meðal annarra leikara úr myndinni sem mættu voru Peter Mayhew, Anthony Daniels, Warwick Davis, Jeremy Bulloch og Ian McDiarmid.
Harrison Ford var aftur á móti fjarri góðu gamni.
Afmælisveislan var hluti af Evrópuráðstefnu Star Wars sem er haldin í borginni Essen.
Mikið var rætt um væntanlega Star Wars-mynd í leikstjórn J.J. Abrams. Tökur hefjast í Bretlandi á næsta ári.
Anthony Daniels, sem lék vélmennið C-3PO, gaf í skyn að hann myndi hugsanlega leika í nýju myndinni eftir að hafa hitt höfund Star Wars, George Lucas.