Flest mistök eru sjáanleg í Jurassic World en nokkurri annarri mynd sem hefur komið út á þessu ári, samkvæmt vefsíðunni Movie Mistakes.
Að minnsta kosti 19 mistök sjást í myndinni. Til dæmis er notaður farsími sem virðist lagast af sjálfu sér, atriði þar sem Owen Grady (persóna Chris Pratt) talar við Claire Dearing (sem Bryce Dallas Howard leikur) án þess að hreyfa varirnar og atriði þar sem frændur Dearing koma yfirgefnum jeppa í gang sem hefur verið í skúr á hitabeltiseyju í 20 ár.
Næstflest mistök sjást í Terminator Genisys, eða 10 talsins. Í Ant-Man og Mad Max: Fury Road voru 8 mistök í hvorri mynd.
Flest mistök allra tíma, samkvæmt síðunni, sjást í stríðsmyndinni Apocalypse Now frá árinu 1979, eða 561.