Disney Studios kvikmyndaverið tilkynnti í gær að tekjur þess af sýningum á myndum sínum í Bandaríkjunum á þessu ári, væru komnar yfir einn milljarð Bandaríkjadala.
Það tók Disney aðeins 174 daga að ná þessu takmarki, sem er met, en fyrra metið var 188 dagar, sett árið 2012.
Þetta er 10. árið í röð og 19 árið í heildina, sem kvikmyndaverið fer yfir milljarðs dollara markið í Bandaríkjunum á einu ári.
„Við erum ánægð með að áhorfendur um land allt hafa tekið myndum okkar vel, og eru að sjá þær á þann hátt sem þær eru ætlaðar, á hvíta tjaldinu,“ sagði Dave Hollis, yfirmaður dreifingar hjá Disney í yfirlýsingu.
Nýjasta myndin, Inside Out, var frumsýnd um síðustu helgi og hlaut gríðargóðar viðtökur, en 90,4 milljónir dala komu í kassann á frumsýningarhelginni í Bandaríkjunum og Kanada, sem gerir myndina að annarri aðsóknarmestu kvikmynd Disney í sögunni á frumsýningarhelgi.
Aðrar myndir Disney á þessu ár eru Avengers: Age of Ultron, með 450,2 milljónir dala, Cinderella, með 199,8 milljónir dala, og Tomorrowland, en sú mynd hefur gengið hvað síst, og þénað 88 milljónir dala í Bandaríkjunum til þessa.
Enn eru sex mánuðir eftir af árinu og ýmsar stórmyndir væntanlegar, eins og Ant-Man, í júlí, og Star Wars Episode VII, The Force Awakens, í desember.