Ryan Reynolds, sem lék titilhlutverkið í Marvel ofursmelli síðasta árs Deadpool, opinberaði um helgina nýja kitlu fyrir framhaldsmyndina, Deadpool 2.
Kitlan, sem er í raun stuttmynd, er sýnd á undan sýningum á X-Men /Wolverine ofurhetjumyndinni Logan.
Vinsældir Deadpool má rekja til góðra blöndu af kynlífi, sótsvörtu glensi og glannalegu og grófu orðbragði, auk þess sem bardagasenurnar voru flottar og söguþráðurinn sömuleiðis.
Í kitlunni sjáum við Deadpool í einskonar Superman-leik, í símaklefa, þar sem hann býr sig undir að bjarga manni í neyð, en endirinn kemur á óvart!
Deadpool 2 er væntanleg í bíó á næsta ári.
Sjáðu kitluna/ stuttmyndina hér fyrir neðan:
Anyone know the number to 911?
No Good Deed https://t.co/HyfsFn48Vl
— Ryan Reynolds (@VancityReynolds) March 4, 2017