Þeir sem eru orðnir leiðir á gamla góða páskaegginu, og vilja breyta aðeins til nú um Páskana, geta fengið sér Benedict Cumberbatch súkklaðikanínu. Vafalaust fá margir vatn í munninn við að heyra þetta!
„Cumberkanínan“ eða „Cumberbunny“ eins og nammið er kallað á frummálinu, kemur úr smiðju bresks súkkulaðifyrirtækis, en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá er um að ræða kanínu með eyru, en ásjónu leikarans.
Cumberbunnies fást í þremur tegundum: úr hvítu súkkulaði, mjólkursúkkulaði og úr dökku súkklaði.
Með þeim fylgir 22 karata gullslaufa og gullryk.
Verðið er aðeins 70 Bandaríkjadalir stykkið, eða um 9.000 íslenskar krónur.
Súkkulaðiframleiðandinn Jen Lindsey-Clark sagði dagblaðinu London’s Evening Standard að hún hefði ákveðið að búa til páskakanínu eftir velgengni „Chocobatch“ sem var súkkulaðistytta í fullri stærð af leikaranum.
Það tekur um þrjá tíma að gera hverja kanínu, og fyrir aðdáendur Cumberbatch er kanínan örugglega hverrar krónu virði.