Penelope Cruz mun framleiða og leika aðalhlutverkið í myndinni Layover, sem er byggð á samnefndri skáldsögu Lisa Zneider frá árinu 1999.
Hún fjallar um syrgjandi sölukonu sem kúplar sig út úr sínu hefðbundna lífi og fer að gista á hinum ýmsu hótelherbergjum.
Toni Kalem skrifaði handritið og hún mun einnig leikstýra.
Cruz sást síðast í hinni misheppnuðu Zoolander 2 og einnig hinni bráðfyndnu The Brothers Grimsby. Fleiri myndir í bígerð frá henni eru The Queen of Spain og Escobar.