Fyrsta stiklan úr Captain America: Civil War er komin út. Þar etur Captain America kappi við fyrrverandi vin sinn Iron Man og ljóst að hörð rimma er í vændum.
Ross hershöfðingi (William Hurt) vill hafa betri stjórn á ofurhetjunum og telur að þær megi ekki vaða eins mikið uppi og þær hafa gert. Þessu eru Steve Rogers (Captain America) og vinir hans ósammála.
Sem fyrr fer Robert Downey Jr. með hlutverk Tony Stark/ Iron Man og Chris Evans er Captain America. Anthony Mackie (Falcon) og Scarlett Johansson (Black Widow) koma einnig við sögu í stiklunni
Captain America: Civil War er væntanleg í bíó næsta vor.