Hin sannsögulega rapptónlistarmynd Straight Outta Compton situr sem fastast á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans, og ekkert fararsnið er á henni þessa vikuna. Myndin er nú búin að vera í tvær vikur í toppsætinu. The Man From U.N.C.L.E. er sömuleiðis kjurr í öðru sætinu aðra vikuna í röð. Það sama má segja um Vacation sem er í sama sæti og í síðustu viku, eða þriðja sætinu.
Nýjar myndir koma svo inn í sæti fjögur, sjö og átta, myndirnar No Escape, Selfless og Transporter: Refueled.
Þá fer japanska myndin Still the Water ný beint í 22. sætið.
Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: