Upprunalegi Ghostbusters leikarinn Bill Murray mun koma fram í nýju Ghostbusters myndinni sem væntanleg er næsta sumar. The Wrap greinir frá þessu. Félagi hans úr upprunalegu myndinni, Dan Aykroyd, mun einnig koma við sögu.
Þeir félagar léku aðalhlutverk í Ghostbusters frá árinu 1984 og Ghostbusters 2 frá árinu 1989, ásamt Harold Ramis, Ernie Hudson og Sigourney Weaver.
Murray sagði í spjallþættinum Late Show árið 2011 að það væri fáránleg hugmynd að hann kæmi fram í nýrri Ghostbusters mynd.
Óvíst er hvert hlutverk Murray verður nákvæmlega.
Öll aðalhlutverkin í nýju myndinni eru í höndum kvenna, þeirra Kristen Wiig, Melissa McCarthy, Kate McKinnon og Leslie Jones. Leikstjóri er Paul Feig.