Willem Dafoe hefur bæst við leikaraliðið í glæpamyndinni Dog Eat Dog, þar sem Nicolas Cage fer með aðalhlutverkið.
Tökur á myndinni eru hafnar í Cleveland. Leikstjóri er Paul Schrader en myndin er byggð á samnefndri bók eftir Eddie Bunker.
Hún fjallar um þrjá glæpamenn sem eru ráðnir til að framkvæma mannrán en lenda á flótta í Los Angeles þegar það fer út um þúfur.
Myndin er væntanleg í bíó á næsta ári, samkvæmt frétt Empire.