Fullt af nýjum myndum hafa verið birtar úr Robert Rodriguez myndinni Machete Kills, og þar má meðal annars sjá Mel Gibson í hlutverki sínu sem aðal þorpari myndarinnar. Á myndinni stendur hann yfir hjarta úr manni í einhverskonar gleríláti.
Einnig eru þarna myndir af Danny Trejo og Tom Savini, sem er félagi hins sverðasveiflandi Machete.
Einnig má þarna sjá Amber Heard og Michelle Rodriguez. Á plakatinu glittir í poppstjörnuna Lady Gaga í gamaldags baðfötum.
Kíktu á myndirnar:
Í Machete Kills þá er þorparinn Machete ráðinn af forseta Bandaríkjanna til að ráðast gegn klikkuðu illmenni sem er bæði byltingarsinnaður og vellauðugur, og ætlar að koma á allsherjar stjórnleysi um öll hin byggðu ból.
Myndin kemur í bíó 11. október nk. í Bandaríkjunum.