Í tilefni 100 ára afmæli Universal Studios kvikmyndaversins hefur fyrirtækið ákveðið að krydda lógóið sem við þekkjum öll, en það hefur nánast alltaf verið jarðarkringlan okkar kæra og orðið „Universal“ svífandi umhverfis hnöttinn í einni mynd eða annari. Nýja breytingin er svo sannarlega eitthvað til að dást að eins og þið sjáið hér fyrir neðan:
Ég verð einfaldlega að segja „vá“ við þessu. Ekki aðeins er það troðið með svakalegum og gullfallegum smáatriðum (sem er jafnvel flottara í háskerpu), heldur tekst nýja lógóinu að vera veraldlegra (döh) og miklu stærra. Maður býst hálfpartinn við því að lógóið eigi eftir að kremja okkur. Hægt er að lesa frekar um sögu lógóa fyrirtækisins hér, og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki séð mörg af þeim sem koma þarna fram áður.
Lógóið var frumsýnt í nýju kvikmynd fyrirtækisins, The Lorax sem er nú sýnd í bandarískum bíóum. Einnig er fyrirtækið að vinna við endurútgáfu 13 klassískra kvikmynda þeirra á borð við Frankenstein, All Quiet On the Western Front, Schindler’s List, The Sting og Jaws. Fínpússun myndanna tók sirka þrjá til sex mánuði og kostaði í kringum 250.000 – 600.000 dollara í hverja mynd, sem eru massívlega góðar fréttir fyrir okkur kvikmyndanerðina.
Hvernig finnst ykkur nýja lógóið og hvaða myndir sem hafa verið fínpússaðar eruð þið spenntust yfir að sjá aftur?