Notendur Netflix eyddu mestum tíma í að horfa á Money Heist, Tiger King og The Queen’s Gambit þetta árið. Streymisrisinn upplýsti notendur sína á dögunum um hvert vinsælasta sjónvarpsefni ársins 2020 væri og ættu upplýsingarnar ekki að koma mörgum á óvart.
Listinn byggir á því hversu margir notendur horfðu á minnst tvær mínútur af efninu mánuð eftir að það var gefið út.
- Money Heist: season 4 (65 milljónir áhorfa)
2. Tiger King: Murder, Mayhem and Madness (64 m)
3. The Queen’s Gambit (62 m)
4. Too Hot to Handle (51 m)
5. Ratched (48 m)
6. The Umbrella Academy season 2 (43 m)
7. Never Have I Ever (40 m)
8. Space Force (40 m)
9. Lucifer season 5, part 1 (38 m)
10. Floor is Lava (37 m)
Athugið að ekki hafa enn verið gefnar út áhorfstölur fyrir The Crown (s4) og Emily in Paris.