Hefurðu áhuga á að vera aukaleikari, eða stadisti, í hasarmyndinni Batman vs Superman?
Undirbúningur fyrir myndina er í fullum gangi. Auglýst hefur verið eftir ólaunuðum aukaleikurum til að koma við sögu í myndinni en með aðalhlutverkin fara Ben Affleck sem Batman og Henry Cavill sem Superman.
Áhugasamir þurfa að vera átján ára eða eldri og vera á réttum stað í Los Angeles laugardaginn 19. október.
Nánari upplýsingar má finna á BeInAMovie.com.