Ofurhetjan Venom heldur sæti sínu á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans aðra vikuna í röð, en það er Tom Hardy sem fer með aðalhlutverkið.
Rúmlega tvö þúsund manns sáu myndina um helgina og samtals eru tekjur myndarinnar frá frumsýningu orðnar tæplega 14,5 milljónir króna.
Í öðru sæti aðsóknarlistans aðra vikuna í röð er svo hrollvekjan Smile 2 en rúmlega þúsund manns sáu hana um helgina. Tekjur hennar eru tæplega 24 milljónir frá frumsýningardegi.
Teiknimyndin 200% úlfur situr svo í þriðja sætinu og fer upp um eitt sæti milli vikna.
The Apprentice í sjöunda sæti
Nýju myndirnar The Apprentice, Here, The Room Next Door og The Girl with the Needle lentu í sjöunda, ellefta, þrettánda sæti og átjánda sæti.
Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: