Topp tíu matarmyndir

Ljósvíkingar er líklega fyrsta íslenska leikna kvikmyndin sem fjallar um matar- og veitingahúsamenningu.

Af því tilefni tókum við saman topplista yfir helstu kvikmyndir um matargerð:


1. Ratatouille (2007)

Af hverju er hún góð: Fallega teiknuð og hlýleg saga gerir myndina að einni bestu matarmynd sem gerð hefur verið.

Ratatouille

Ratatouille 2007

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 111 mínÖllum leyfðIMDb 8.1

Remy lifir á rusli með fjölskyldu sinni á sveitabýli, en ólíkt flestum hefur hann stóra drauma; hann þráir það heitast að verða kokkur. Á flótta frá býlinu stía örlögin honum frá fjölskyldunni og staðsetja hann á…

Gefa einkunn

2. Chef (2014)

Af hverju er hún góð: Hún nær vel að sýna gleðina við eldamennsku og mikilvægi fjölskyldunnar.

Chef

Chef 2014

Gaman · 115 mín9 áraIMDb 7.3

Jon Favreau leikur hér kokkinn Carl Casper sem er ósáttur við að þurfa að elda mat eftir dyntum annarra og bregður ítrekað út af hefðbundnum matseðli vinnuveitanda síns. Við það er vinnuveitandinn ósáttur og dag einn…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

3. Julie & Julia (2009)

Af hverju er hún góð: Minnisstæð frammistaða Meryl Streep í hlutverki Julia Child.

Julie and Julia

Julie and Julia 2009

Rómantík, Drama, Æviágrip · 123 mínÖllum leyfðIMDb 7.0

Myndin segir frá Julie Powell, sem ákveður einn daginn að prófa að matreiða allar 524 uppskriftirnar í matreiðslubók eftir Juliu Child, en hún ber nafnið „Mastering the Art of French Cooking“. Heldur Julie skrá yfir…

Gefa einkunn

4. Jiro Dreams of Sushi (2011)

Af hverju er hún góð: Hér kafað djúpt í fagmennskuna og metnaðinn sem þarf til að verða frábær kokkur.

Jiro Dreams of Sushi

Jiro Dreams of Sushi 2011

Heimildarmynd · 81 mínÖllum leyfðIMDb 7.8

Jiro Ono er líklega besti sushi-kokkur í öllum heiminum. Jiro er 85 ára gamall en vinnur sleitulaust dag hvern frá sólarupprás til sólarlags að því að fullkomna sushigerðarlist sína. Veitingahúsið hans er hálffalið í…

Gefa einkunn

5. Big Night (1996)

Af hverju er hún góð: Fallega gerð mynd sem fjallar m.a. um áskoranir sem fylgja veitingageiranum.

Big Night

Big Night 1996

Rómantík, Drama · 109 mín6 áraIMDb 7.3

Tveir innflytjendur og bræður, Primo og Secondo, reka ítalskan veitingastað í Bandaríkjunum. Til að bjarga rekstrinum leggja þeir allt undir til að undirbúa ótrúlega veislu til heiðurs Louis Prima.

Gefa einkunn

6. Burnt (2015)

Af hverju er hún góð: Hér fáum við innsýn í álagið sem fylgir því að vinna í hágæða veitingahúsi.

Burnt

Burnt 2015

Gaman, Drama · 101 mín12 áraIMDb 6.6

Matreiðslumaðurinn Adam Jones var í frábærum málum, en klúðraði því öllu. Hann var kokkur á tveggja Michelin stjörnu veitingastað en á sama tíma var hann með skelfilega ósiði sem komu honum í koll. Hann var alræmdur í…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

7. Eat Drink Man Woman (1994)

Af hverju er hún góð: Hér er kafað djúpt í tengsl innan fjölskyldu og hlutverk matar í að halda við hefðum.

Eat Drink Man Woman

Eat Drink Man Woman 1994

Gaman, Rómantík, Drama · 124 mínÖllum leyfðIMDb 7.8

Kínverski meistarakokkurinn Chu, sem er ekkill og kominn á eftirlaun, og fjölskylda hans búa í Taipei í Taiwan. Hann býr með þremur aðlaðandi dætrum sem allar eru á lausu. Fljótlega kynnast þær allar manni. Þegar þessi…

Gefa einkunn

8. The Hundred-Foot Journey (2014)

Af hverju er hún góð: Heillandi saga um átök milli veitingamanna og alþjóðlegt tungumál matar.

The Hundred-Foot Journey

The Hundred-Foot Journey 2014

Rómantík, Drama · 122 mínÖllum leyfðIMDb 7.3

Myndin segir frá indverskri fjölskyldu sem flúði frá Indlandi eftir að veitingastaður þeirra var eyðilagður í óeirðum stjórnarandstæðinga með þeim afleiðingum að fjölskyldumóðirin, sem jafnframt var kokkurinn á…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

9. Tampopo (1985)

Af hverju er hún góð: Hér er lögð áhersla á listina við að elda ramen súpur.

Tampopo

Tampopo 1985

Gaman · 114 mín12 áraIMDb 7.9

Í þessari fyndnu lofgjörð um ástina á matargerð stoppa tveir vörubílstjórar á hrörlegum núðlustað. Ekkjan sem rekur staðinn, Tampopo, biður þá um að hjálpa sér að snúa rekstri staðarins við og gera hann að fyrirmynd…

Gefa einkunn

10. The Menu (2022)

Af hverju er hún góð: Kaldhæðnisleg og flugbeitt sýn á fín veitingahús.

 The Menu

The Menu 2022

Gaman, Hrollvekja, Spennutryllir · 106 mín16 áraIMDb 7.1

Ungt par fer á fjarlæga eyju til að snæða þar á rándýrum veitingastað þar sem sem matreiðslumaðurinn undirbýr glæsilega máltíð, með nokkrum óvæntum og yfirgengilegum uppákomum.

Horfa:Disney+
Gefa einkunn