Leikarinn Sam Rockwell, úr myndum á borð við Moon og The Green Mile, lýsti í nýlegu viðtali yfir áhuga sínum á að leika ofurhetju. Rockwell var einn af þeim leikurum sem komu til greina sem Tony Stark í Iron Man, en það hlutverk hreppti Robert Downey Jr. að lokum. Rockwell lék þó einn skúrkinn í Iron Man 2, en fékk þó ekki ofurkrafta í það skiptið.
„Ég væri til í að leika ofurhetju. Ég veit að það væri erfitt að sannfæra fólk um að ég gæti það, en ég held að ég yrði góð ofurhetja.“ sagði Rockwell í viðtali við Empire tímaritið.
Það er spurning hvaða ofurhetju Sam Rockwell gæti gert góð skil? Hvað finnst ykkur?
– Bjarki Dagur