Rassinn á Svampi sést á nýju plakati

Ný mynd um Svamp Sveinsson, The SpongeBob Movie: Sponge Out of Water, er væntanleg snemma á næsta ári, og nú er glænýtt plakat komið út.

Tíu ár eru liðin síðan fyrsta Svamps Sveinssonar kvikmyndin kom út, en hún hét einfaldlega SpongeBob SquarePants Movie.

Eins og sést á plakatinu þá sést í rassinn á Svampi þegar krabbi tosar niður um hann buxurnar. Sjáðu nýja plakatið hér fyrir neðan:

_1402430187

Eins og sést á plakatinu er myndin í þrívídd. Leikstjóri er Paul Tibbit,  en hann er öllum hnútum kunnugur í heimi Svamps, þar sem hann hefur leikstýrt fjölda sjónvarpsþátta um kappann.

Tom Kenny talar bæði fyrir Svamp og snigilinn Gary.

Ekki er búið að gefa út söguþráð myndarinnar, en vitað er að Antonio Banderas mun leika Alameda Jack, sem sagt er að eigi að vera sjóræningi. Menn velta fyrir sér hvort að Banderas muni einungis tala í myndinni, eða hvort að hann geri það sama og David Hasselhoff gerði í fyrri myndinni, þar sem hann kom fram í eigin persónu.