Suicide Squad og The Wolf of Wall Street leikkonan Margot Robbie bregður sér ýmis líki í kvikmyndinni Terminal, en fyrsta stiklan fyrir myndina er nýkomin út.
Í myndinni fer Robbie með hlutverk Annie, kynþokkafullrar og ögrandi konu sem vefur karlmönnum um fingur sér.
Opinber söguþráður myndarinnar er eftirfarandi: „Tveir leigumorðingjar taka að sér stórhættulegt verkefni fyrir dularfullan mann, og fá vel greitt fyrir. Þeir hitta fyrir konu sem gæti verið meira tengd verkefninu en þeir áttuðu sig á í fyrstu.
Ásamt Robbie leika þeir Simon Pegg, Max Irons, Dexter Fletcher og Mike Myers stærstu hlutverkin í myndinni, sem við fyrstu sín lítur út fremur absúrd og lyfjuð!
Kíktu á stiklu og plakat hér fyrir neðan: