Febrúarblað mynda mánaðarins er komið út. Harðhausinn og sjarmatröllið John McClane prýðir forsíðu Bíóblaðsins að þessu sinni, enda er fimmta Die Hard myndin að koma út í mánuðinum, A Good Day to Die Hard.
Á forsíðu DVD blaðsins er ekki minni sjarmör mættur, en það er sjálfur James Bond, en nýjasta James Bond myndin, Skyfall, kemur út í febrúar.
Að vanda er blaðið sneisafullt af góðu efni. Gott yfirlit er yfir allar bíómyndir sem frumsýndar verða í mánuðinum, og yfirlit yfir allar DVD og Blu-ray myndir sem koma út, sem og nýja tölvuleiki.
Smellið hér til að lesa blaðið hér á kvikmyndir.is í rafrænu formi.