Amazon streymisveitan frumsýndi nú um helgina fyrstu stiklu úr nýrri sjónvarpsþáttaröð sem fjallar um Jack Ryan, söguhetju úr bókum spennusagnahöfundarins Tom Clancy.
John Krasinski fer með titilhlutverkið í þáttunum, en Ryan er ungur og upprennandi greinandi innan bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem leiðist inn hættulegt verkefni í fyrsta skipti. Ryan sér mynstur í samskiptum hryðjuverkamanna og í hönd fer stórhættulegur hildarleikur, þar sem hryðjuverk geta valdið meiriháttar eyðileggingu á heimsvísu.
Þegar hafa verið gerðar nokkrar bíómyndir um sömu söguhetju, myndir eins og The Hunt for Red October, Patriot Games og nú síðast Shadow Recruit frá árinu 2014.
Þættirnir koma á streymisþjónustuna Amazon Prime á næsta ári.