Warner Bros. hefur sett í loftið nýja kitlu úr myndinni Batman v. Superman: Dawn of Justice.
„Öllum er sama þótt Clark Kent takist á við Batman,“ segir yfirmaður Kent (Laurence Fishburne) í stiklunni.
Kitlan var frumsýnd á Twitter á sunnudagskvöld.
Face off. #Batman #Superman #WhoWillWin https://t.co/O3JlR3PtOd
— Batman v Superman (@BatmanvSuperman) January 24, 2016
Eftir að Batman klessukeyrir Batmobile segir Súperman við Leðurblökumanninn: „Leðurblakan er dáin. Jarðaðu hana.“
Hasarmyndin er væntanleg í bíó vestanhafs 25. mars í leikstjórn Zack Snyder.