Little Red Riding Hood: A classic story, but there's more to every tale than meets the eye. Before you judge a book by its cover, you've got to flip through the pages. In the re-telling of this classic fable, the story begins at the end of the tale and winds its way back. Chief Grizzly and Detective Bill Stork investigate a domestic disturbance at Granny's cottage, involving a karate-kicking Red Riding Hood, a sarcastic wolf and an oafish Woodsman.
Það er misskilningur að þetta sé barnamynd í rauninni. Hvort framleiðendur hugsuðu myndina sem slíka veit ég ekki en söguþráður myndarinnar er allt of flókin fyrir ung börn.
Í mynd…
Það er misskilningur að þetta sé barnamynd í rauninni. Hvort framleiðendur hugsuðu myndina sem slíka veit ég ekki en söguþráður myndarinnar er allt of flókin fyrir ung börn.
Í myndinni er sögunni um Rauðhettu nefnilega breytt allverulega. Henni er eiginlega breytt í sakamálsasögu í anda Agöthu Cristie.
Rauðhetta er ekki allskostar ánægð með hlutskipti sitt í lífinu. Úlfurinn er hreint ekki allur þar sem hann er séður. Veiðimaðurinn birtist sem snargeðveikur axarmorðingi og amman...well... Í rauninni er ekkert í þessari mynd eins og það sýnist í fyrstu enda „klassísk” glæpasaga ef svo má að orði komast. ;-)
Dálítið „posh” froskur er nokkurskonar græn útgáfa af Hercule Poirot eða Sherlock Holmes. Froskurinn rekur söguna aftur á bak með yfirheyrslum yfir öllum karakterunum. Þannig sjáum við söguna aftur og aftur en út frá nýju sjónarhorni í hvert sinn, það er að segja frá sjónarhóli hvers karakters. Þetta verður að teljast nokkuð óvenjuleg nálgun á ævintýrinu svo ekki sé dýpra í árinna tekið.
Kröfur fólks um að allt sé fullkomið varðandi grafík og tæknibrellur eru orðnar nokkuð þreytandi. Það verða ekki allar myndir eins og Shrek eða Ísöldin. Þessi mynd bætir engu við hvað varðar grafík en hún bara alveg ágæt þrátt fyrir það.
Þetta er mynd sem er fín í tækinu heima það er óþarfi að kaupa sig inn á hana í bíó (nema að um afsláttarsýningu sé að ræða).
Hún er engu að síður ágætasta skemmtun og vel hægt að hlæja að henni. Já og eitt enn, mæli með því að fólk horfi á hana með ensku tali.
Þetta er ein alversta mynd sem ég hef séð... fyrst þá er þetta svoltið nett og síðan er þetta allveg HRYLLILEGT!!! ég mæli ekki með henni en samt þeir sem hafa lélegan smekk á myndum …
Þetta er ein alversta mynd sem ég hef séð... fyrst þá er þetta svoltið nett og síðan er þetta allveg HRYLLILEGT!!! ég mæli ekki með henni en samt þeir sem hafa lélegan smekk á myndum mundu örugglega ekki fýla þessa einusinni...en já.. passa sig á svona myndum!
Þessi mynd er mjög góð til að birja með síðan verður hún frekar langdregin þegar það er farið í það að endurtaka allt aftur og aftur með smá breitingum en verður aftur góð og sp…
Þessi mynd er mjög góð til að birja með síðan verður hún frekar langdregin þegar það er farið í það að endurtaka allt aftur og aftur með smá breitingum en verður aftur góð og spennandi fljótlega en maður var nú samt búinn að finna nokkurnveginn út endirinn þegar myndin var hálfnuð en þetta er bara það sem ég vildi tjá mig um en þið verðið auðvitað að vega og meta sjálf :)
Hoodwinked er meiriháttar skemmtun. Hér er sagan um Rauðhettu tekin fyrir og breytt í hálfgerða mystery-spennusögu. Myndin er svo steikt í heildina, en hún þrælvirkar samt. Myndin hefur mjög sniðuga sögu, hálfgerð Agatha Christie saga, og sameinar hana með skrautlegum persónum(þar eru íkornin og syngjandi geitin best) og óvenjulegri atburðarrás. Hún er virkilega fyndin og hló ég mikið yfir vitleysunni sem þessi mynd hafði að bjóða uppá. Ef þið eruð mikið fyrir þætti eins og Family Guy og myndir sem eru mjög vitleysislegar(eins og undirritaður er), mæli ég hiklaust með að þið skellið ykkur á þessa ræmu. 3 stjörnur.
Hoodwinked er mjög sérstök teiknimynd, og ekki endilega á mjög jákvæðan máta. Söguþráður myndarinnar, eða yfir höfuð uppbygging hennar er nokkurn veginn alltof flókin og snjöll (eða…
Hoodwinked er mjög sérstök teiknimynd, og ekki endilega á mjög jákvæðan máta. Söguþráður myndarinnar, eða yfir höfuð uppbygging hennar er nokkurn veginn alltof flókin og snjöll (eða svo heldur hún...) fyrir litla krakka, en sömuleiðis þá er húmorinn alltof smábarnalegur fyrir fullorðna. Myndin býr yfir mörgum skemmtilegum hugmyndum, og nokkrum frábærum persónum, einna helst spítt-drifna íkornanum, en mér finnst eins og hefði getað orðið mun betur unnið úr þeim. Svo ég tali nú ekki um hversu áberandi ódýr grafíkin er, a.m.k ef borið er saman við Pixar eða DreamWorks gæði þá virkar þessi mynd alltof metnaðarlaus, eins og hún hafi jafnvel verið gerð í flýti. Raddsetningin er heldur ekkert til að minnast eitthvað sérstaklega á. Ég hrósa myndinni þó fyrir að vera ekki nema eitthvað um 80 mínútur, annars stórefa ég að Hoodwinked eigi eftir að eldast eitthvað vel með árunum. Sæmileg afþreying, fyndin í skömmtum, en ég á bágt með að mæla með heildinni.5/10
Þegar ég var lítill átti ég dúkku sem var hægt að snúa við á einum endanum var rauðhetta á hinum endanum var úlfurinn og amman... ÞAÐ VAR SKEMMTILEGRA EN MYNDIN
Þessi er ekki nógu góð. Ég hef aldrei áður sofnað í bíó. Gæti verið skárri á ensku? Ég er samt ekki viss. Húmorinn er ekki alveg nógu góður.
Hugmyndin er samt góð. Ævint…
Þessi er ekki nógu góð. Ég hef aldrei áður sofnað í bíó. Gæti verið skárri á ensku? Ég er samt ekki viss. Húmorinn er ekki alveg nógu góður.
Hugmyndin er samt góð. Ævintýri Rauðhettu sett upp með nýjum hætti og séð út frá sjónarhorni nokkura karektera. Gallinn er bara að það vantar algjörlega húmor og hún höfðar ekki til yngstu krakkanna. Myndin er í raun byggð upp þannig að ævintýrið er sýnt þrisvar frá sjónarhorni mismunandi karaktera, og í þriðja sinn sem söguþráðurinn er að byrja voru krakkarnir farnir að segja oh, ekki aftur!.
Gef henni 2 stjörnur. Hún hefði fengið tvær og hálfa ef hún hefði verið flottari, en grafíkin og tæknibrellurnar voru ekki að heilla mig. Væri til í að sjá hana á ensku.
Ef þig langar í bíó með börnin og fá næði til að leggja þig, þá er þetta myndin. Krakkarnir á sýningunni sem ég fór á rétt flissuðu tvisvar...