Náðu í appið
Bönnuð innan 6 áraÍ myndinni er ljótt orðbragð

The Secret Life of Walter Mitty 2013

Frumsýnd: 3. janúar 2014

114 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 52% Critics
The Movies database einkunn 54
/100

Myndin er endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1947, en hún var aftur byggð á smásögu bandaríska rithöfundarins og húmoristans James Thurber sem birtist fyrst í tímaritinu The New Yorker árið 1939. Sagan hefur allar götur síðan verið í hávegum höfð í bandarískum bókmenntum og er í dag flokkuð til meistaraverka. Þetta er sagan um hinn kurteisa en feimna... Lesa meira

Myndin er endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1947, en hún var aftur byggð á smásögu bandaríska rithöfundarins og húmoristans James Thurber sem birtist fyrst í tímaritinu The New Yorker árið 1939. Sagan hefur allar götur síðan verið í hávegum höfð í bandarískum bókmenntum og er í dag flokkuð til meistaraverka. Þetta er sagan um hinn kurteisa en feimna Walter Mitty sem er vægast sagt dálítið utangátta í lífinu og litinn hornauga af ýmsum sem umgangast hann dags daglega. Walter vinnur á ljósmyndadeild tímaritsins Life, en á það til að flýja hinn hversdagslega raunveruleika inn í dagdrauma þar sem hann er hetjan sem allt getur. Þegar tilkynnt er að leggja eigi tímaritið niður og segja öllu starfsfólkinu upp ákveður Walter að gera eitthvað nýtt og heldur í ferðalag út í heim. Það ferðalag á eftir að verða skrítnara og viðburðaríkara en nokkrir af dagdraumum hans ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn