Náðu í appið
Öllum leyfð

The Apostle 1997

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 4. september 1998

Lust, Obsession, Revenge... Redemption

134 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 88% Critics
The Movies database einkunn 83
/100
Robert Duvall var tilnefndur til Óskarsverðlauna. Ýmsar aðrar tilnefningar og verðlaun.

Eulis "Sonny" Dewey, er predikari frá Texas, sem lifir hamingjusömu lífi með fallegri eiginkonu sinni Jessie. Skyndilega fellur þessi veröld hans til grunna, þegar upp kemst að Jessie heldur framhjá honum með ungum presti sem heitir Horace. Sonny brjálast og lemur Horace með hafnaboltakylfu, sem veldur því að Horace fellur í dauðadá. Eftir þetta þá yfirgefur... Lesa meira

Eulis "Sonny" Dewey, er predikari frá Texas, sem lifir hamingjusömu lífi með fallegri eiginkonu sinni Jessie. Skyndilega fellur þessi veröld hans til grunna, þegar upp kemst að Jessie heldur framhjá honum með ungum presti sem heitir Horace. Sonny brjálast og lemur Horace með hafnaboltakylfu, sem veldur því að Horace fellur í dauðadá. Eftir þetta þá yfirgefur hann bæinn, tekur upp nýtt nafn, "Apostle E.F." og fer til Louisiana fylkis. Þar byrjar hann að vinna sem tæknimaður fyrir útvarpsstöð í litlum bæ sem Elmo á og rekur. Elmo leyfir honum einnig að predika á útvarpsstöðinni. E.F. byrjar síðan að predika út um allt, í útvarpinu, úti á götu og með nýjum vini sínum, séra Blackwell byrjar hann að berjast fyrir því að gömul kirkja verði gerð upp. ... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn


Þessi hrífandi gæðamynd óskarsverðlaunaleikarans Roberts Duvall, (sem einnig er höfundur handritsins og leikstjóri hennar), hlaut mikið lof gagnrýnenda og fyrir utan mörg önnur verðlaun var Duvall sjálfur tilnefndur til óskarsverðlaunanna sem besti leikari í aðalhlutverki karla 1997. Robert Duvall leikur hér hvítasunnuprestinn Euliss "Sonny" Dewey sem hefur helgað líf sitt Guði og fundið hjá sér mikla köllun til að bjarga þurfandi sálum frá glötun. Hann er vinsæll og virtur enda boðar hann guðsorð af óbugandi trú og með sannfæringarkrafti sem hrífur alla sem á hlýða. Dag einn uppgötvar hann að eiginkona hans, Jessie, hefur verið honum ótrú og er ákveðin í að fara fram á skilnað. Auk þess hefur hún á löglegan en siðlausan hátt vélað af honum það dýrmætasta sem hann á: Kirkjuna hans. Í andartaksbræði verður honum á að slasa elskhuga eiginkonu sinnar lífshættulega og leggur síðan á flótta. Hann endar í litlum bæ í Louisiana og tekur að glíma við þær kvalir sem lagðar hafa verið á hann með því að predika orð Guðs. En fortíðin hefur ekki sagt skilið við hann og hann hefur ekki sagt skilið við fortíðina ... Hér er á ferðinni eftirminnileg kvikmynd sem er ein besta kvikmynd hins óviðjafnanlega Robert Duvall sem hefur ekki verið betri síðan í "Tender Mercies" 1983 sem hann hlaut óskarinn fyrir sem besti leikari í aðalhlutverki þess árs. Þessar tvær eru bestu myndir hans auk leiks hans í stórmyndunum "Apocalypse Now" og "The Godfather 1 og 2" sem eru meðal bestu mynda kvikmyndasögunnar. Þetta er hinsvegar kvikmynd sem allir alvöru kvikmyndaunnendur ættu kunna að meta og mun hún í huga þeirra standa eftir sem ein eftirminnilegasta kvikmynd ársins 1997. Hún er hreint stórfengleg og við allra hæfi og þeir sem vilja ekki missa af stórleik Duvall ættu að horfa á hana ef ekki væri nema bara þess vegna. Alls ekki missa af henni!!!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn