Bringing Up Baby
1938
Fannst ekki á veitum á Íslandi
And so begins the hilarious adventure of Professor David Huxley and Miss Susan Vance, a flutter-brained vixen with love in her heart!
102 MÍNEnska
97% Critics 91
/100 Dýrafræðingurinn David Huxley vonast eftir að fá 1 milljón dala styrk fyrir Náttúrugripasafnið og hittir þá frænku væntanlegs styrktaraðila, Susan Vance. David er trúlofaður aðstoðarkonu sinni Alice Swallow - og er að fara að gifta sig daginn eftir - en það stoppar Susan ekki, og telur að hún hafi þarna fundið framtíðareiginmann sinn. Susan og David eru... Lesa meira
Dýrafræðingurinn David Huxley vonast eftir að fá 1 milljón dala styrk fyrir Náttúrugripasafnið og hittir þá frænku væntanlegs styrktaraðila, Susan Vance. David er trúlofaður aðstoðarkonu sinni Alice Swallow - og er að fara að gifta sig daginn eftir - en það stoppar Susan ekki, og telur að hún hafi þarna fundið framtíðareiginmann sinn. Susan og David eru algjörar andstæður - hann er alvarlegur, bókhneigður vísindamaður og hún er hálfgerð ótemja. Allt fer í háaloft þegar hlébarði sem Susan pantaði sem gjöf handa frænku sinni kemur, og er ruglað saman við annan og mun hættulegri hlébarða, sem sleppur þegar verið er að flytja hann úr dýragarðinum. Þetta er bara byrjunin á degi þeirra saman, og meiri ruglingur fylgir í kjölfarið. ... minna