Náðu í appið
Bönnuð innan 6 áraMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börn

The Sting 1973

...all it takes is a little Confidence.

129 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 93% Critics
The Movies database einkunn 83
/100
Vann sjö Óskarsverðlaun. Besta mynd, besta leikstjórn, besta handrit, listræn stjórnun, búningar, klipping og tónlist. Tilnefnd til þriggja Óskara í viðbót.

Svindlarinn Johnny Hooker stelur óafvitandi frá Doyle Lonnegan, sem er stór glæpaforingi, þegar hann er við smáglæpaiðju sína úti á götu. Lonnegan krefst þess að þetta sé leiðrétt. Eftir að hrottar Lonnegan drepa félaga Hooker, Luther, þá flýr Hooker, og leitar hjálpar hjá Henry Gondorff, sem er einn af tengiliðum Luther, og er meistari í svikum og prettum.... Lesa meira

Svindlarinn Johnny Hooker stelur óafvitandi frá Doyle Lonnegan, sem er stór glæpaforingi, þegar hann er við smáglæpaiðju sína úti á götu. Lonnegan krefst þess að þetta sé leiðrétt. Eftir að hrottar Lonnegan drepa félaga Hooker, Luther, þá flýr Hooker, og leitar hjálpar hjá Henry Gondorff, sem er einn af tengiliðum Luther, og er meistari í svikum og prettum. Hooker vill nota sérfræðiþekkingu Gondorff til að ræna stórri peningaupphæð frá Lonnegan til að jafna metin, þar sem hann viðurkennir að hann viti ekki nógu mikið um morð til að geta drepið hann. Þeir búa til flókna áætlun og safna saman hópi hæfileikaríkra svindlara, sem allir vlija fá sinn skerf af fengnum. Hér er teflt djarft, og svindlaragengið þarf ekki einungis að eiga við miskunnarleysi Lonnegan, heldur einnig aukapersónur sem allar vilja fá hlut í fjörinu. Til að koma út sem sigurvegari þá þurfa Hooker og Gondorff að nota allt sem þeir kunna ... og talsvert mikið af sjálfstrausti. ... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn


Klassísk og einstaklega vel gerð óskarsverðlaunamynd sem hlaut sjö óskarsverðlaun árið 1973, þ.á.m. sem besta kvikmynd ársins, fyrir besta handritið, fyrir hina góðu og einkar eftirminnilegu ragtime-tónlist Scott Joplin, en hún setur mjög sterkan heildarsvip á alla myndina og síðast en ekki síst fyrir hina eftirminnilegu leikstjórn meistarans George Roy Hill. Hér er sögð saga tveggja blekkingarmeistara sem setja upp veðmálagildru fyrir stórlax eftir að hann drap náinn félaga þeirra. Þessi kvikmynd hefur elst með stakri prýði enda með allra bestu kvikmyndum áttunda áratugarins og gervallrar kvikmyndasögunnar. Óskarsverðlaunaleikararnir Paul Newman og Robert Redford, eru alveg hreint frábærir í hlutverkum Henry Gondorff og Johnny Hooker og vinna einn af mestu leiksigrum á ferli sínum, þeir fara hreinlega á kostum. Ekki er Robert Shaw mikið síðri í hlutverki stórlaxsins undirförula, Doyle Lonnegan. Ennfremur má að síðustu nefna Eileen Brennan, Charles Durning, Ray Walston og Harold Gould. Þessi sjöfalda óskarsverðlaunakvikmynd er ótvírætt ein af allra bestu og eftirminnilegustu myndum áttunda áratugarins og setti mjög mikið mark á hann. Hún er einfaldlega hreint og beint snilldarverk sem ég gef fjórar stjörnur og ég mæli eindregið með að allir kvikmyndaaðdáendur horfi á njóti þess til fulls.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Þetta er frábær mynd um tvo bragðarefi sem ætla að hefna fyrir morð á vini sínum. Þeir Robert Redford og Paul Newman fara á kostum alla myndina.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn