Janúarhefti, og fyrsta eintak ársins 2015, kvikmynda – og DVD/Blu-ray/VOD tímaritsins Myndir mánaðarins, 252. tölublað, er komið út, en eins og ávallt er blaðið sneisafullt af áhugaverðu efni í bland við kynningar á nýjustu myndum bíóhúsanna í desembermánuði sem og nýjum myndum sem gefnar verða út á DVD, Blu-ray og/eða VOD í mánuðinum.
Á forsíðum blaðsins eru annarsvegar Liam Neeson í hlutverki Bryan Mills í þriðju Taken myndinni, og á forsíðu DVD hlutans er það enginn annar en myrkrahöfðinginn Drakúla greifi í myndinni Dracula Untold, en í myndinni leikur íslenski leikarinn Þorvaldur Davið Kristjánsson.
Taken 3 verður frumsýnd á morgun, föstudaginn 9. janúar, en Dracula Untold kemur út á vídeó þann 29. janúar nk.
Einnig má í blaðinu sjá það nýjasta á tölvuleikjamarkaðnum og margt fleira, eins og stjörnuspá, bíófréttir og bíómiðaleik.