Universal Pictures kvikmyndaverið hefur gefið út fyrstu stikluna í fullri lengd fyrir nýju Bourne myndina, Jason Bourne, sem frumsýnd verður hér á landi þann 29. júlí nk.
Í myndinni snýr Matt Damon aftur sem ofurnjósnarinn Jason Bourne í leikstjórn Paul Greengrass, sem leikstýrði Damon einnig í The Bourne Supremacy og The Bourne Ultimatum.
Ekkert er vitað um söguþráð myndarinnar nema það að Bourne kemur í myndinni „út úr skugganum“.
„Ég man, ég man allt,“ segir Bourne í stiklunni. Stiles svarar: „Að muna allt, þýðir ekki að þú vitir allt.“
Sjáðu stikluna hér fyrir neðan, sem er full af fjöri, eltingarleikjum, skotbardögum og leit Bourne að sjálfum sér:
Aðrir helstu leikarar eru Alicia Vikander, Vincent Cassel, Tommy Lee Jones og Julia Stiles.