Disney/Marvel ofurhetjumyndin Ant-Man er vinsælasta mynd helgarinnar í Bandaríkjunum, með tekjur upp á 56,4 milljónir Bandaríkjadala.
Þessi niðurstaða er samkvæmt Deadline vefnum, í takt við spár. Í samanburði við fyrri ofurhetjumyndir þá er myndin með lakari árangur á frumsýningarhelgi en Thor, sem þénaði 65,7 milljónir dala, og Captain America: The First Avenger, með 65,1 milljónir dala í tekjur.
Ant-man fjallar um ofurhetjuna Ant-Man sem hefur þann hæfileika að geta minnkað sig, en fær jafnframt ofurkrafta. Ant-Man er í raun ein af Avengers-hetjunum og fylgir að stórum hluta fyrstu sögunni um Ant-Man og segir frá því þegar uppfinningamaðurinn Hank Pym velur þjófinn Scott Lang til að klæðast búningi hans og sinna mikilvægu verkefni ..
Ant-Man er tekjuhæsta leikna ( live action ) kvikmynd Paul Rudd, sem leikur titilhlutverkið, á frumsýningarhelgi frá upphafi, en áður var Knocked Up vinsælasta mynd hans á frumsýningarhelgi.
Minions voru áfram vinsælir í Bandaríkjunum með 50,2 milljónir dala í tekjur í öðru sæti bandaríska aðsóknarlistans. Í þriðja sætinu kom svo gamanmyndin Trainwreck, nýjasta mynd leikstjórans Judd Apatow, en tekjur myndarinnar þessa frumsýningarhelgi duga til þess að gera hana að annarri vinsælustu mynd leikstjórans á frumsýningarhelgi frá upphafi.
Handrit myndarinnar skrifaði Amy Schumer, sem jafnframt leikur aðalhlutverkið.
Hér eru efstu 12 myndirnar í Bandaríkjunum:
1). Ant-Man
2). Minions
3). Trainwreck
4). Inside Out
5). Jurassic World
6). Terminator: Genisys
7). Magic Mike XXL
8). The Gallows
9). Ted 2
10). Mr. Holmes
11).Bajrangi Bhaijaan
12) Self/Less