Grínmyndin Tropic Thunder sló heldur betur í gegn þegar hún kom fyrst í kvikmyndahús, en meðal annars var það hlutverk Tom Cruise sem vakti hvað mesta kátínu. Cruise fór með hlutverk kvikmyndaframleiðandans ýkta Les Grossman, en nú er kvikmynd um kappan á leiðinni.
Nýlega voru gefnar út auglýsingar til að kynna MTV Movie Awards og skörtuðu þær Cruise í hlutverki Grossman. Þetta var gert til að kanna hvort áhugi væri fyrir myndi byggðri á framleiðandanum háværa. Auglýsingarnar slóu heldur betur í gegn og hefur myndinni nú verið hrint í fulla framleiðslu, en handritið er nú þegar tilbúið. Höfundur þess er Michael Bacall, en hann skrifaði Scott Pilgrim VS the World.