Söngkonan Avril Lavigne vill verða leikkona.
Hún er þekktust fyrir smelli á borð við Complicated og I´m With You en vill núna breyta til og spreyta sig í heimi kvikmyndannna.
„Mitt næsta markmið er kvikmyndagerð. Mig langar að leika í jólamynd, hryllingsmynd, grínmynd og fleiri myndum,“ sagði hin þrítuga Lavigne við US Weekly. „Á eftir tónlistinni þá eru myndlist, leiklist og tískuhönnun mín helstu áhugamál.“
Ef draumur Lavignne rætist fetar hún í fótspor tónlistarkvenna á borð við Madonnu, Cher, Mariah Carey og Katy Perry, sem hafa allar spreytt sig á leiklistinni með misjöfnum árangri þó.