Vinna við myndina um Arthúr konung eftir breska leikstjórann Guy Ritchie, stendur enn yfir, en frumsýningu myndarinnar hefur verið ítrekað seinkað. Samkvæmt nýjustu upplýsingum verður myndin frumsýnd hér á Íslandi, og erlendis, 24. mars á næsta ári.
Sagt er að bæði Warner Bros og Ritchie vonist til að myndin verði sú fyrsta í röð mynda, og því er ekki skrýtið að menn vilji vanda sig og taka sér góðan tíma í að klára.
Auk þess sem frumsýningardagar hafa verið að breytast, þá er er komið nýtt heiti á myndina. Myndin hét áður Knights of the Roundtable: King Arthur, en heitir nú: King Arthur: Legend of the Sword.
Auk þessa nýja nafns þá hefur Entertainment Weekly nú birt nýjar ljósmyndir úr myndinni, sem sjá má hér fyrir neðan:
Á efri myndinni sjá um við Charlie Hunnam sem Arthúr konung, en á neðri myndinni sjáum við frænda Arthúrs ,Vortigern, leikinn af Jude Law, en miðað við drungalegt útlit hans þá er hann líklega ekki einn af góðu gæjunum í myndinni, enda myrðir hann bróður sinn og föður Arthúrs, Uther Pendragon, sem Eric Bana leikur, og leggur undir sig konungsríkið, með hjálp galdra.