Á undanförnum dögum hefur stuttmyndin Hvalfjörður verið að gera það gott, en hún hefur verið valin besta stuttmyndin á þremur virtum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum.
Í tilkynningu frá Sagafilm segir að myndin hafi unnið Golden Starfish verðlaunin á Hamptons hátíðinni í Bandaríkjunum og þar með sé hún orðin gjaldgeng fyrir tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir bestu leiknu stuttmyndina árið 2015. Einnig var hún valin besta stuttmyndin á Film Fest Gent hátíðinni í Belgíu en með þeim sigri hlaut hún tilnefningu til Evrópsku Kvikmyndaverðlaunanna 2014. Síðast en ekki síst var Hvalfjörður valin besta leikna stuttmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Varsjá í Póllandi sem lauk um helgina. Kvikmyndahátíðin í Varsjá telst til svokallaðra „A“ hátíða.
Í umsögn dómnefndar alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Varsjá segir: „Hvalfjörður hlýtur verðlaun fyrir framúrskarandi kvikmyndatjáningu á mannlegum samskiptum, með ákaflega athugulli leikstjórn og eftirtektarverðri frammistöðu leikara”.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Guðmund Arnar leikstjóra með verðlaunin sem Hvalfjörður hlaut á Hamptons kvikmyndahátíðinni.
Hvalfjörður hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr á árinu.